Sport

Ver leikaðferðir sínar

Sven-Göran er ánægður með að vera kominn í 8-liða úrslitin
Sven-Göran er ánægður með að vera kominn í 8-liða úrslitin

Sven-Göran Eriksson segist þess fullviss að 4-5-1 leikkerfið sem hann notaði í dag geti reynst enska liðinu vænlegt til árangurs í keppninni og var Eriksson gagnrýndur nokkuð þrátt fyrir sigurinn í dag, en enska liðið þótti spila leiðinlegan og hugmyndasnauðan sóknarleik.

"Ég tel að þetta leikkerfi eigi að virka mjög vel fyrir okkur. Við hefðum ef til vill átt að skora fleiri mörk í dag, en mig langaði mest að komast í næstu umferð og það tókst. Nú erum við komnir í 8-liða úrslit og vonandi tekst okkur betur til þar en á síðasta HM," sagði Eriksson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×