Sport

West Ham kaupir Carlton Cole

Carlton Cole færir sig um set í Lundúnum og er genginn í raðir West Ham
Carlton Cole færir sig um set í Lundúnum og er genginn í raðir West Ham NordicPhotos/GettyImages
Enska úrvalsdeildarliðið West Ham hefur fest kaup á framherjanum Carlton Cole frá Englandsmeisturum Chelsea. Cole er 22 ára gamall og hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Chelsea, þrátt fyrir að leika á tíðum vel fyrir enska U-21 árs liðið. Hjá West Ham mun hann keppa við þá Dean Ashton, Teddy Sheringham, Bobby Zamora og Marlon Harewood um stöðu í framlínunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×