Sport

Fabio Aurelio til Liverpool

Fabio Aurelio er einn þriggja leikmanna sem Liverpool fékk í sínar raðir í dag
Fabio Aurelio er einn þriggja leikmanna sem Liverpool fékk í sínar raðir í dag AFP
Liverpool hefur fengið til sín vinstri bakvörðinn Fabio Aurelio á frjálsri sölu frá spænska liðinu Valencia, en Aurelio þessi varð einmitt spænskur meistari undir stjórn Rafa Benitez þegar hann stýrði liðinu á sínum tíma. Þá hefur Liverpool einnig gert samning við tvítuga miðvörðinn Gabriel Paletta frá argentínska liðinu Atletico Banfield og fyrr í dag fékk Mark Gonzalez loks atvinnuleyfi hjá félaginu eftir að það keypti hann fyrir ári síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×