Innlent

Íslendingar í Beirút

Samkvæmt heimildum NFS er Atlanta flugfélagið með flugvél og mannskap á alþjóðaflugvellinum í Beirút, þar sem ísraelskar herþotur vörpuðu sprengjum í morgun. Allir eru heilir á húfi og flugvélin óskemmd hingað til.

Fregnir hafa borist af því að Ísraelar hyggist varpa fleiri sprengjum á flugvöllinn í kvöld. Hótelið sem Íslendingarninr eru á er nánast orðið tómt, samkvæmt þeim upplýsingum sem NFS hefur. En flugvöllurinn hefur verið lokaður frá því ráðist var á hann í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×