Innlent

Skútu hvolfdi við Geldingarnes

Tveimur mönnum var bjargað á giftusamlegan hátt eftir að bát þeirra hvolfdi við Geldingarnes fyrir skömmu.

Björgunarsveitir og fjölmennt lögreglulið var kallað út að Geldingarnesi klukkan hálf níu í kvöld. Tveir menn héngu á kili báts og voru talsvert þjakaðir enda úrhellisrigning og vindur. Mennirnir tveir voru fluttir burt með sjúkrabíl. Skömmu síðar bar björgunarsveitarmenn á kajökum að bátnum þar sem reynt var að koma honum á kjölinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×