Innlent

SPRON styrkir ÍR

SPRON og körfuknattleiksdeild ÍR hafa undirritað starfssamning. Samkvæmt samningnum mun SPRON vera aðalstyrktaraðili deildarinnar næstu þrjú árin og nær samstarfið allt frá meistaraflokkum félagsins til æskulýðsstarfs. Með samningnum er ætlað að styðja við öflugt starf deildarinnar og stuðla að því að ÍR eigi lið í fremstu röðum, í öllum aldursflokkum.

Samningurinn kveður á um stuðning við alla aldurshópa félagsins og er áhersla lögð á þátttöku í barna- og unglingastarfi. SPRON mun m.a. útvega öllum í deildinni íþróttatöskur og haldið verður árlega mót fyrir yngri flokka, í íþróttahúsi ÍR sem mun bera nafnið, SPRON mótið.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×