Innlent

Sammála um að verja íslenskan landbúnað

Mynd/Hörður Sveinsson
Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við matvælaskýrslunni liggja ekki fyrir á þessari stundu. Geir H. Haarde segir að stjórnarflokkarnir séu þó sammála um að verja íslenskan landbúnað. Það þýði ekki að vaða yfir einstaka atvinnugreinar með þjösnaskap. Landbúnaðurinn sé þó að breytast mjög hratt. Hann hefur áhyggjur af því að ávinningur af skattalækkunum á mat kunni að lenda annars staðar en í vasa almennings verði ekki tekið á fákeppni í smásölu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×