Árni Friðriksson, rannsóknarskip Hafrannsóknarstofnunar, hefur lokið tveggja vikna leiðangri á Reykjaneshrygg og í landgrunnshlíðum beggja vegna hans.
Fram kemur á vef Hafrannsóknarstofnunar að markmið leiðangursins var að kortleggja þekkt kóralsvæði, friðuð veiðisvæði og mikilvægar veiðislóðir ásamt öflunar upplýsinga um jarðfræði hafsbotnsins. Kortlagningin er undirbúningur frekari rannsókna á búsvæðum kóralla og áhrifum svæðafriðunar á samfélög botndýra.
Afrakstur leiðangursins er nákvæmt dýptarkort af 6.700 ferkílómetrum, sem er með stærri svæðum sem mæld hafa verið með fjölgeislamæli við Ísland. Á kortinu má greina menjar ísaldarjökuls og sýnir kortið að gosmyndanir eru yfirfnæfandi á sjálfum Reykjaneshrygg.
Leiðangursstjóri var Guðrún Helgadóttir og skipstjóri Guðmundur Bjarnason.