Innlent

2500 ábendingar um barnaklám

Ábendingalínu Barnaheillar vegna barnakláms á Netinu hafa borist 2500 ábendingar síðustu ár. Talsmenn tengslasíðna eins og MySpace og Bebo hafa viðurkennt að þeir geti lagt meira á sig til að halda kynferðisglæpamönnum frá börnum.

Í vefútgáfu The Independent er í dag fjallað um að stórar tengslasíður hafi viðurkennt að þáttur þeirra til að takmarka aðgengi kynferðisglæpamanna að börnum gæti verið meiri. Á síðum eins og MySpace og Bebo getur fólk opnað sín svæði með allskyns upplýsingum og efni. Þar eru vinasamfélög sem kynferðisglæpamenn nýta sér til þess að komast í samband við börn. Í síðast mánuði var til dæmis 21 árs maður, í Bretlandi, dæmdur fyrir að hafa haft kynmök við þrettán og fjórtán ára gamlar stúlkur sem hann nálgaðist í gengum slíkar síður. Samfélag, fjölskylda og tækni rekur verkefni sem miðar öruggri netnotkun barna.

María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla, segir ágætis samstarf hafa verið við íslenskar síður en segir að gera megi enn betur og vill hún sjá að sótt sé eftir leyfi foreldra áður en börn fá að stofna síður svo þau geti ekki gert slíkt nema með leyfi og vitund foreldra.

Mikilvægast segir hún að foreldrar séu meðvitaðir um tæknina sem börnin nota og tileinki sé hana. Ábendingalínu Barnaheilla hefur frá árinu 2001 borist yfir 2500 ábendignar um barnaklám á netinu og reyndist í nærri níu hundruð tilfellum um barnaklám að ræða og var því komið áfram til lögregluyfirvalda í viðkomandi löndum.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×