Innlent

Áfrýjar til Hæstaréttar

Jónas Garðarsson, fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi sem kveðinn var upp yfir honum um manndráp af gáleysi.

Jónas var dæmdur fyrir að hafa valdið dauða tveggja farþega um borð í skemmtibát sínum Hörpu sem steytti á Skarfaskeri en Jónas var undir áhrifum áfengis þegar slysið varð. Jónas krefst sýknu en ákæruvaldið mun fara fram á þyngri dóm yfir Jónasi, en þeim sem hann fékk í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem hann var dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×