Innlent

Tómas Zoëga áfram yfirlæknir hjá LSH

Náðst hefur samkomulag milli forstjóra LSH og Tómasar Zoëga um að Tómas haldi áfram yfirlæknisstarfi sínu við geðsvið spítalans með sama hætti og áður.

Hæstiréttur hafði úrskurðað að ekki hafi verið rétt staðið að uppsögn Tómasar hjá spítalanum. Þegar sú niðurstaða lá fyrir krafðist Tómas þess að fá sína fyrri stöðu aftur án skilyrða. Í yfirlýsingu frá Landspítalanum er áréttað að það sé áfram stefna spítalans að yfirlæknar stundi ekki jafnframt rekstur eigin stofu utan spítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×