Innlent

Fólksbíll hafnaði ofan í skurði

Fólksbíll fór út af veginum skammt frá norðurenda Hvalfjarðarganganna rétt fyrir klukkan fimm í dag og hafnaði ofan í skurði. Að sögn lögreglunnar á Akranesi hlaut ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, höfuðhögg en talið er að meiðsl hans séu ekki alvarleg. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til nánari skoðunar. Ekki er vitað hvað varð til þess að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×