Innlent

Könnuðu hug almennings lítið

Stjórnendur Strætós leituðu ekki kerfisbundið til almennings eftir hugmyndum, þegar nýja leiðakerfið var tekið upp. Þeir töldu meðal annars fjármunum félagsins betur varið í daglega starfsemi en ítarlega athugun.

Fyrirtæki beita oft skoðanakönnunum og viðtölum við almenning til að greina hvaða þjónustu fólk vill og með hvaða hætti. Með því telja stjórnendur fyrirtækja að þeir geti hagað starfsemi sinni þannig að sem flestir leiti til fyrirtækisins eftir þjónustu. Lítið fór hins vegar fyrir þessu þegar unnið var að nýju leiðakerfi Strætós.

Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætós bs., segir að eflaust hefði mátt gera betur í að hafa samráð við almenning. Hann segir eina ástæðuna fyrir því að almenningur hafi ekki verið spurður hvernig leiðakerfi hann vildi vera þá að menn hafi talið fjármununum betur varið í annað. Þess í stað hafi verið notast við ýmsar rannsóknir, meðal annars á ferðavenjum almennings. Auk þess hafi verið efnt til borgarafunda þar sem fólk gat kynnt sér áætlanirnar og komið með ábendingar og athugasemdir.

Síðustu fimm ár hefur verið kannað hverjir ferðast með strætisvögnum og hversu mikið. Tveir af hverjum fimm ferðast með strætó oftar en fimm sinnum í viku og fjórðungur þrisvar til fimm sinnum. Aðeins fjórtán prósent ferðast með strætisvögnum tvisvar eða sjaldnar. NFS gerði í dag könnun meðal þeirra sem sitja í stjórn Strætó og kom þá allt önnur mynd í ljós. Enginn stjórnarmaður nær því að ferðast einu sinni eða oftar með strætisvagni í viku hverri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×