Erlent

Kaupum frestað á Orkla media

Breska fjárfestingarfélagið Mecom, sem ætlar að kaupa Orkla Media, sem Dagsbrún hafði áhuga á, fyrr á árinu, virðist ekki geta reitt kaupverðið fram og hefur undirskrift samninga verið frestað dag frá degi frá því um síðustu helgi. Þetta kemur fram í Berlingske Tidende, sem Orkla gefur meðal annars út. Við kaupin þarf Mecom að hafa greitt 75% af þeim 6,6 milljörðum danskra króna, sem fyrirtækið á að kosta, en Mercom hefur ekki tekist það til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×