Innlent

Bensínverð lækkar

Olíufélagið Esso lækkar verð á bensíni í dag og lækkar hver lítri af bensín um eina krónu og tíu aura. Fyrr í vikunni reið ESSO á vaðið og hækkaði verð á bensínlítranum um þrjár krónur og fjörtíu aura.

Esso segir lækkunina nú koma vegna lækkunar olíuverðs á heimsmarkaði síðustu daga. Einnig hafi staða krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar styrkst. Eftir lækkunina verður algengasta verð á 95 oktana bensíni hjá ESSO 131 króna og 70 aurar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×