Sport

Guðjón Valur er fyrirliði Gummersbach

Guðjón Valur, fyirliði Gummersbach
Guðjón Valur, fyirliði Gummersbach

Landsliðmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hefur verið valinn fyrirliði VfL-Gummersbach í þýska handboltanum á komandi leiktíð. Fjórir Íslendingar eru í herbúðum Gummersbach, ásamt Guðjóni þeir Róbert Gunnarsson, Sverre Andreas Jakobsson og Þjálfarinn Alfreð Gíslason.

Guðjón Valur átti frábært tímabil í fyrra og var útnefndur besti leikmaður þýsku deildarinnar sem margir vilja kalla bestu deild í heimi. Hann var einnig valinn í lið ársins af vikublaðinu Handball Woche, sem hefur sett Guðjón í heimsgæðaflokk.

Samkvæmt heimasíðu Gummersbach var tilkynnt um fyrirliðann í Altensteig þar sem Gummersbach er í æfingabúðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×