Innlent

Bíll valt við Kirkjubæjarklaustur

Tveir menn sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, þegar bíll þeirra fór út af þjóðveginum vestan við Kirkjubæjarklaustur í gærkvöldi og valt. Við það þeyttust ýmiskonar efniskútar um allan bílinn og út úr honum, meðal annars 200 kílóa köfnunarefniskútur, en engin kútur lenti á mönnunum. Þeir voru fluttir á heilsugæslustöðina á Kirkjubæjarklaustri til aðhlynningar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×