Innlent

Sjö tölvuskjám stolið í Hafnarfirði

Brotist var inn í Menntasetrið við Lækinn í Hafnarfirði um helgina og sjö tölvuskjám stolið. Lögreglan í Hafnarfirði segir málið í rannsókn. Einnig komu upp níu fíkniefnamál hjá lögreglunni í Hafnarfirði um helgina. Hald var lagt á hass og meint amfetamín. Málin níu er talin upplýst.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×