Innlent

Steinunn Valdís gefur kost á sér í fjórða sætið

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir þingkosningar sem fram fer 11. nóvember næstkomandi. Í tilkynningu frá Steinunni kemur fram að hún hafi starfað í meirihluta borgarstjórnar í 12 ár og hún telji sig hafa þá reynslu sem til þurfi svo Samfylkingin geti komist til valda í landsstjórninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×