Innlent

Hannes Hlífar landaði sínum áttunda titli

Hannes Hlífar Stefánsson varð í gærkvöldi Íslandsmeistari í skák í áttunda sinn. Hann gerði jafntefli við Héðin Steingrímsson í fjórðu einvígisskákinni. Með sigrinum sló Hannes Hlífar met, en enginn hefur orðið Íslandsmeistari í skák jafn oft.

Fyrir hálfri öld varð Baldur Möller Íslandsmeistari í sjöunda sinn, en það met átti hann ásamt Eggerti Gilfer. Með sigrinum í gær landaði Hannes Hlífar sínum sjötta Íslandsmeistaratitli í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×