Innlent

Atlantsolía lækkar eldsneytisverð

Atlantsolía hefur ákveðið að lækka verð á bensínlítranum um eina krónu og lítrann af dísilolíu um fimmtíu aura. Eftir lækkunina kostar bensínlítrinn 123,2 krónur og 122,2 fyrir dælulyklahafa. Dísillítrinn kostar hins vegar 120,5 krónur og 119,5 krónur fyrir dælulyklahafa. Engar tilkynningar hafa borist frá stóru olíufélögunum um slíka lækkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×