Innlent

Skúli Eggert nýr ríkisskattstjóri

Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri hefur verið skipaður ríkisskattstjóri frá og með næstu áramótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Skúli Eggert hefur verið skattrannsóknarstjóri frá árinu 1993 en hann gegndi starfi vararíkisskattstjóa á árunum 1990-1993. Skúli Eggert tekur við af Indriða H. Þorlákssyni sem lætur af embætti ríkisskattstjóra um næstu mánaðamót en frá þeim tíma og fram til áramóta mun Ingvar Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri gegna embætti ríkisskattstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×