Innlent

Reyksíminn styrktur um sex milljónir króna

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að styrkja starfsemi Reyksímans með þriggja milljóna króna framlagi á ári í tvö ár. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins. Um er að ræða viðbót við árlegt framlag Lýðheilsustöðvar, sem verið hefur þrjár milljónir króna á ári undanfarin ár og því tvöföldun fjár til starfseminnar. Reyksíminn hefur verið rekinn frá árinu 2001 og þjónar þeim sem vilja aðstoð við að hætta að reykja, nota tóbak eða hætta notkun nikótínlyfja. Síminn er 800 6030.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×