Innlent

Hvalfjarðargöngin opnuð á ný

Hvalfjarðargöngin hafa verið opnuð á ný eftir að þeim var lokað vegna bílveltu í göngunum á sjötta tímanum síðdegis.

Lögreglan fékk tilkynningu um bílveltu í Hvalfjarðargöngunum kl. 17:10 síðdegis. Ökumaður mun hafa misst stjórn á fólksbíl sínum og bíllinn farið nokkrar veltur og staðnæmst á hliðinni. Ekki munu hafa orðið nein teljandi meiðsl á fólki, að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×