Innlent

Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni

Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni sem hefst við Húsgagnahöllina á Bíldshöfða nú klukkan ellefu. FÍB og Atlantsolía standa að keppninni og geta þeir sem vilja vera með mætt til leiks allt til klukkan hálf eitt.

Það eru ekki aðeins minnstu smábílar sem keppa heldur eru þarna allar stærðir og upp í dýrustu fjórhjóladrifsbíla. Eknir verða rúmir 140 kílómetrar, um Nesjavelli, Selfoss og Þrengslin til baka til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×