Innlent

Flugslys sviðsett á Bíldudalsflugvelli

Bíldudalur
Bíldudalur MYND/Hilmar

Neyðar- og björgunarsveitaæfing hefur staðið yfir á Bíldudal í dag. Sett var á svið flugslys þar sem flugvél með 21 farþega um borð lenti harkalega á Bíldudalsflugvelli.

Að æfingunni koma fjölmargar björgunarsveitir, lögregla, starfólk á heilsugæslunni, slökkvilið og Rauði krossinn. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá þessu en um 100 manns taka þátt í æfingunni. Um sextíu manns taka þátt í því að bjarga en á fjórða tug manna eru í hlutverki slasaðra og aðstandenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×