Innlent

Jagland í opinberri heimsókn hér á landi

Thorbjörn Jagland er fyrrverandi forsætisráðherra Noregs.
Thorbjörn Jagland er fyrrverandi forsætisráðherra Noregs. MYND/AP
Thorbjørn Jagland, forseti norska Stórþingsins, verður í opinberri heimsókn á Íslandi ásamt eiginkonu sinni frá og með deginum í dag til 15. október.

Jagland mun eiga fundi með Sólveigu Pétursdóttur, forseta Alþingis, formönnum þingflokka og formanni Samfylkingarinnar. Þá hittir hann einnig forseta Íslands, utanríkisráðherra og umhverfisráðherra auk þess sem hann skoðar sýningar í Þjóðminjasafninu og Þjóðmenningarhúsinu og heimsækir Norræna húsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×