Innlent

Forval VG á höfuðborgarsvæðinu 2. desember

Frá flokksráðsfundi Vinstri - grænna í haust.
Frá flokksráðsfundi Vinstri - grænna í haust. MYND/Anton Brink

Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að forval flokksins vegna þingkosninga í vor í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður og Suðvesturkjördæmi verði haldið þann 2. desember.

Kosningarétt hafa félagsmenn í Vinstri - gærnum í kjördæmunum en fjórir efstu frambjóðendur flokksins í hverju þessara kjördæma verða valdir í forvalinu. Framboðsfrestur er til 11. nóvember en þegar hafa varaformaður flokksins, Katrín Jakobsdóttir, og þingmennirnir Ögmundur Jónasson og Kolbrún Halldórsdóttir lýst yfir vilja til að leiða flokkinn í einhverju kjördæmanna þriggja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×