Innlent

Ólöf Nordal sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi

Ólöf Nordal, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum í vor.

Í tilkynningu frá Ólöfu kemur fram að hún sé lögfræðingur og MBA. Hún starfaði í samgönguráðuneytinu og á Verðbréfaþingi Íslands á árnum 1996-2001. Samhliða því var hún stundakennari í lögfræði við Viðskiptaháskólann á Bifröst og tók þátt í mótun náms í viðskiptalögfræði við skólann og varð í kjölfarið fyrsti deildarstjóri þeirrar deildar.

Eftir lok MBA prófs 2002 hóf Ólöf störf hjá Landsvirkjun sem yfirmaður heildsöluviðskipta og síðar hjá Rafmagnsveitum ríkisins sem yfirmaður sölumála. Ólöf er nú framkvæmdastjóri Orkusölunnar ehf. með aðsetur á Egilsstöðum.

Ólöf hefur gegnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum og er nú formaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Auðar á Austurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×