Heilsa

Frá Hippókratesi til Matthildar

Gríski læknirinn Hippókrates
Gríski læknirinn Hippókrates
Sögulegt yfirlit náttúrulækninga

Faðir náttúrulækningastefnunnar er gríski læknirinn Hippókrates, sem jafnframt er talinn faðir læknisfræðinnar og var uppi á 5. öld fyrir Krists burð. Hippókrates lagði megináherslu á að koma í veg fyrir sjúkdóma með réttum lifnaðarháttum.

Upphafsmaður náttúrulækningastefnunnar hér á landi, Jónas Kristjánsson læknir, vildi auka lífsgæði þjóðarinnar með heilbrigðari lífsháttum. Hann hvatti fólk til að bera ábyrgð á eigin heilsu og kappkostaði að miðla þeirri þekkingu og fróðleik sem sönnust var og réttust á hverjum tíma. Hann stóð ætíð traustum fótum í þekkingarheimi vísindanna.

Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði hefur starfað í áratugi og byggir á heildrænum lækningum. Þar er heilsuvandi einstaklinganna skoðaður með það í huga að líta þurfi á andlegt, líkamlegt og félagslegt ástand í samhengi. Fræðsla og fagleg ráðgjöf er stór þáttur í starfinu og er þar lögð mest áhersla á heilsuvernd og bætta lífshætti. Náttúrulækningastefna Heilsustofnunar NLFÍ er í fullu samræmi við markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um bætt heilbrigði og heilsuvernd.

Í dag hafa fjölmargir bæst í hóp þeirra sem starfa í anda náttúrulækningastefnunnar og sinna heildrænni heilsufræði. Matthildur Þorláksdóttir náttúrulæknir er þeirra á meðal en hún rekur náttúrulækningastofu og matstofu í Grafarvogi. Matthildur greinir fæðuóþol og orkustíflur af öðrum völdum og ráðleggur fólki með fæðuval og lífsstíl. Hún vinnur líka með „colon" eða ristilhreinsanir og smáskammtalyf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×