Innlent

Ellert gefur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar

Ellert B. Schram, fyrrverandi forseti ÍSÍ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þann 11. nóvember. Í tilkynningu Ellerts segist hann ekki sækjast eftir tilteknu sæti heldur láti kjósendum eftir að velja það. Ellert segist vilja veg jafnaðarstefnunnar sem mestan í næstu þingkosningum og auk þess telji hann að það skaði ekki að rödd reynslunnar og eldri kynslóðarinnar heyrist og hafi hlutverki að gegna. Ellert var einnig á lista Samfylkingarinnar fyrir síðustu þingkosningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×