Viðskipti erlent

Mikil hækkun á gengi Apple

iPod-spilari frá Apple.
iPod-spilari frá Apple.

Gengi bandaríska tækniframleiðandans Apple Computers hækkaði um 6 prósent á markaði vestanhafs í dag í kjölfar þess að fyrirtækið greindi í gær frá góðri afkomu á síðasta fjórðungi ársins, sem er fjórði fjórðungur ársins í rekstrarreikningi félagsins. Góð afkoma er að þakka mikil sala á Macintoshtölvum og iPod-spilurum.

Hagnaður fyrirtækisins nam 546 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 37,3 milljarða íslenskra króna. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 430 milljónum dala eða rétt rúmlega 29,3 milljörðum króna. Tekjur námu 4,84 milljörðum dala eða 330,5 milljörðum íslenskra króna en það er 32 prósenta aukning á milli ára.

Apple seldi rúmar 8,7 milljónir iPod-spilara á síðasta fjórðungi ársins en það er 35 prósenta aukning frá síðasta ári. Þá jókst sala á Macintosh-tölvum sömuleiðis um 30 prósent á sama tímabili.

Greinendur hjá Banc of America hækkuðu vegna þessa verðmat á Apple. Segja þeir virði félagsins verða 84 dalir á hlut en gengið stendur í dag í um 79 dölum.

Þá er fastlega búist við áframhaldandi vexti hjá félaginu en á meðal áætlana þess á næsta ári er að setja á markað tækið iPhone, farsíma sem tengja má við iPod-spilarann, og iTV, sem gerir notendur kleift að streyma tónlist, kvikmyndum og öðru margmiðlunarefni af Netinu í afþreyingagræju heimilisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×