Innlent

Nærri tvöfalt fleiri í framboði í prófkjörum en síðast

MYND/GVA

Nærri tvöfalt fleiri frambjóðendur berjast um þingsæti í prófkjörum Samfylkingarinnar í ár en fyrir síðustu þingkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Þar segir að 71 frambjóðandi taki þátt í prófkjörum flokksins í hinum sex kjördæmum landsins fyrir komandi þingkosningar en þeir voru 39 fyrir síðustu kosningar. Hyggst flokkurinn gefa út sérstakt rit þar sem allir frambjóðendur hans eru kynntir og verður því dreift með Fréttablaðinu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×