Innlent

Árni Þór stefnir á eitt af efstu sætunum

Árni Þór Sigurðsson
Árni Þór Sigurðsson

ÁrnI Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, hyggst sækjast eftir einu af efstu sætunum á lista flokksins í sameiginlegu forvali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi vegna þingkosninga í vor. Forvalið fer fram 2. desember. Árni Þór hefur undanfarin tólf ár unnið að sveitarstjórnarmálum í Reykjavík, fyrst sem borgarfulltrúi innan R-listans en frá því í vor sem annar fulltrúi Vinstri - grænna í minnihluta í borgarstjórn. Þrír hafa þegar lýst því yfir að þeir vilji leiða einhvern listanna þriggja, þau Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins, og þingmennirnir Kolbrún Halldórsdóttir og Ögmundur Jónasson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×