Innlent

Félag vélstjóra og málmtæknimanna inn í ASÍ

Nýtt sameinað félag, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, var samþykkt sem aðildarfélag Alþýðusambands Íslands á ársfundi ASÍ, sem var settur í morgun.

Fram kemur í frétt á vef ASÍ að félagið var formlega stofnað þann 14. þessa mánaðar, með sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna.

Fyrir sameiningu var Félag járniðnaðarmanna innan Alþýðusambandsins, en Vélstjórafélag Íslands utan þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×