Innlent

Notkun endurskinsmerkja ábótavant

Öll fjölskyldan með endurskinsmerki
Öll fjölskyldan með endurskinsmerki mynd/getty

Lögreglan í Reykjavík hefur tekið eftir því að notkun endurskinsmerkja á höfuðborgarsvæðinu er ábótavant. Rannsóknir hafa sýnt fram á að vegfarendur, sem bera endurskinsmerki, sjást mun betur í umferðinni.

Því getur munað að ökumenn sjái þá sem eru með endurskinsmerki allt að fimm sinnum fyrr heldur en þá sem ekki bera merki. Lögreglan brýnir því fyrir öllum vegfarendum að nota endurskinsmerki sérstaklega vegna þess að dagurinn styttist óðfluga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×