Innlent

Tölur kl. 20:00 - Staðan óbreytt, Björn tjáir sig ekki

MYND/Villi

Guðlaugur Þór Þórðarson heldur enn öðru sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þegar 5.759 atkvæði hafa verið talin. Guðlaugur Þór hefur hlotið 4.654 atkvæði en Björn Bjarnason er í þriðja sæti, hefur hlotið 4.060 atkvæði. Geir Haarde hefur hlotið 5.525 atkvæði í fyrsta sæti eða tæplega 96% greiddra atkvæða. Guðfinna Bjarnadóttir hedlur fjórða sætinu, Illugi Gunnarsson er í þvi fimmta og Ásta Möller í sjötta sæti. Björn Bjarnason vill ekki tjá sig um hvort hann taki 3. sætið á lista Sjálfstæðismanna ef úrslit verða á þann veg í prófkjörinu. Þessi afstaða Björns eykur á spennuna í talningu atkvæða í prófkjörinu.

1 Geir H. Haarde 5.525

2 Guðlaugur Þór Þórðarson 4.654

3 Björn Bjarnason 4.060

4 Guðfinna S. Bjarnadóttir 4.630

5 Illugi Gunnarsson 4.690

6 Ásta Möller 4.583

7 Pétur H. Blöndal 4.353

8 Sigurður Kári Kristjánsson 4.443

9 Birgir Ármannsson 4.445

10 Sigríður Andersen 3.550

11 Dögg Pálsdóttir 3.402

12 Grazyna M. Okuniewska 1.978



 

Þakklæti, spenna og sterkur listi

Björn játar sig þó ekki sigraðan en Guðlaugur Þór Þórðarsson er enn í öðru sæti þegar búið er að telja 3992 atkvæði. Allt bendir svo til þess að Sjálfstæðismenn eignist tvo nýja þingmenn, Guðfinnu Bjarnadóttur, sem er nú í fjórða sæti og Illuga Gunnarsson, sem er í fimmta sæti. Í sjötta sæti núna er Ásta Möller.

Björn Bjarnason sagði í viðtali við NFS um klukkan 19:30, að hann myndi ræða það þegar úrslitin lægju fyrir hvaða sæti hann myndi taka.

Guðlaugur Þór Þórðarsson segir stöðuna mjög ánægjulega, en hvort heldur sem er, annað eða þriðja sætið, yrði góð niðurstaða fyrir sig og fyrir flokkinn. Prófkjörið leggði grunninn að stórsigri Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í vor.

Guðfinna Bjarnadóttir er ánægð og sæl og þakklát fyrir stuðninginn. "Nú þarf að finna nýjan rektor fyrir Háskólann í Reykjavík," segir Guðfinna.

Ásta Möller segist afskaplega sátt með kosningu sína og Guðfinnu.

Geir Haarde, formaður flokksins sagði í samtali við NFS að það stefndi í spennandi kosningakvöld. Kosningin væri jöfn og spennandi, og hvernig sem niðurstaðan yrði væri ljóst að Sjálfstæðismenn væru að stilla upp afar öflugum lista fyrir kosningarnar í vor, fimm af 12 efstu á listanum væru konur og þarna blandaðist saman nýtt fólk og fólk með öfluga reynslu í pólitík.

Sigurður Kári Kristjánsson segir að hann hefði veiljað ná betri árangri en tíðindin felist í því ef Guðlaugur nái öðru sæti og Guðfinna því fjórða í sínu fyrsta prófkjöri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×