Innlent

Grænar konur í Reykjavík

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar ætlar að leggja það til á fundi nefndarinnar í dag, að nokkrum umferðarljósum í borginni verði breytt þannig að í stað mynd af karli við gangbrautir, verði kona.

Í greinargerð með tillögunni segir meðal annars að þetta kunni að leiða til skoðanaskipta um kynhlutverk og kynímynd, sem kveikt séu með jákvæðum hætti og gefi tilefni til skínandi skemmtilegrar samræðu um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×