Innlent

Útvarp innflytjenda hefur útsendingar á morgun

stefán

Opnað verður fyrir útvarp innflytjenda í Hafnarfirði á morgun á stöðinni Halló Hafnarfjörður á FM 96,2. Fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ að bærinn hafi í samstarfi við fjölmiðldeild Flensborgarskóla og Alþjóðahúsið unnið að því að hefja útsendingarnar, sem ná til Hafnarfjarðar, en einnig verður hægt að hlusta á það á heimasíðu Hafnafjarðarbæjar. Stefnt er að hálftímaútsendingum fjórum sinnum sinnum í viku á allt að 13 tungumálum en pólska, rússneska, tagalog og enska verða megintungumálin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×