Innlent

Árekstur við strætisvagn

MYND/Vilhelm Gunnarsson

Tvær konur voru fluttar á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvoginum eftir að bíll þeirra lenti í árkestri við strætisvagn á mótum Salavegar og Arnarnesvegar um sex leitið í gærkvöldi.

Konurnar reyndust ekki alvarlega slasaðar þótt beita hafi þurft klippum til að ná annari út úr bílflakinu. Ökumann og farþega strætisvagnsins sakaði ekki.

Tildrög slyssins eru óljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×