Handbolti

Logi og Ásgeir heitir

Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmenn hjá þýska liðinu Lemgo, fóru fyrir sínu liði í Evrópuleik gegn Maccabi Rishon Le Zion í gærkvöldi og skoruðu báðir sex mörk.

Lemgo vann auðveldan 42-25 útisigur gegn ísraelska liðinu en þetta var fyrri leikur liðanna í EHF-keppninni í handbolta. Síðari leikurinn fer fram í Þýskalandi eftir viku og má fastlega gera ráð fyrir því að Logi og Ásgeir séu búnir að tryggja sér farseðilinn í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×