Erlent

Móðir Parísar stolt af klámmyndbandinu

Móðir Parísar Hilton er stolt af öllu sem hún hefur gert, einnig klámmyndbandinu sem fór á netið, ef marka má nýja ævisögu hennar sem Jerry nokkur Oppenheimer skráði.

Oppenheimer segir að hann hafi fengið mikla samúð með París meðan hann var að skrifa bókina. Hún hefði ekki átt annarra kosta völ en að verða fræg, því móðir hennar, Kathy hafi þrýst á hana. Hún hafi gefið henni snyrtidót, til að farða sig, og leyft henni að sækja næturklúbba meðan hún var aðeins krakki.

Oppenheimer segir að klámbandið "Ein nótt í París" hafi gert telpuna heimsfræga og það hafi foreldrarnir verið ánægð með. Hann segir að móðir hennar og amma séu, í gegnum hana, að upplifa þá æsku sem þær hefðu gjarnan viljað eiga sjálfar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×