Erlent

Fórnarlömb árása Ísraels borin til grafar

Hin þriggja ára Maysa Al-Athamna var meðal þeirra átján fórnarlamba Ísraelshers sem borin var til grafar í dag.
Hin þriggja ára Maysa Al-Athamna var meðal þeirra átján fórnarlamba Ísraelshers sem borin var til grafar í dag. MYND/AP

Tugþúsundir Palestínumanna fylgdu fórnarlömbum árásar Ísraela í Beit Hanoun í fyrrinótt til grafar í morgun. Átján manns létust í árásinni, þar á meðal fjölmargar konur og börn. Yfir höfðum syrgjenda sveimuðu ómannaðar ísraelskar eftirlitsflugvélar.

Átjánmenningarnir voru allir úr sömu fjölskyldunni. Þeir voru bornir til grafar í kirkjugarði í Beit Hanoun sem enn er verið að byggja upp en hann var opnaður í skyndi þar sem ekki var nægt pláss í öðrum kirkjugörðum til þess að taka á móti öllum fórnarlömbunum.

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna árásanna, en þetta er mesta mannfall í röðum palestínskra borgara í árás Ísraelshers í sex ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×