Andlitslausi maðurinn er látinn 9. nóvember 2006 15:32 Markus Wolf, njósnaforingi. MYND/AP
Austur-þýski njósnarinn Markus Wolf er látinn, áttatíu og þriggja ára að aldri. Lengst af kalda stríðinu var hann einn valdamesti maður Austur-Þýskalands. Hann var stundum kallaður "Andlitslausi maðurinn" vegna þess að leyniþjónustum vesturlanda tókst aldrei að ná mynd af honum. Wolf stýrði utanríkisdeild hinnar illræmdu leyniþjónustu Stasi, og náði ótrúlegum árangri í að koma njósnurum sínum fyrir í háum embættum í Vestur-Þýskalandi. Meðal annars þurfti Willy Brandt, kanslari Vestur-Þýskalands að segja af sér árið 1974, þegar í ljós kom að persónulegur einkaritari hans var austur-þýskur njósnari. Brandt var þá mitt í sinni "Ostpolitik" sem miðaði að því að sætta austur og vestur. Rétt áður en þýsku ríkin sameinuðust flúði Markus Wolf til Rússlands og bað um pólitískt hæli, en var gerður afturreka. Hann sneri þá aftur til Þýskalands, þar sem hann, eftir nokkurt þóf, var dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira