Innlent

Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag

Flugi hefur verið aflýst í dag.
Flugi hefur verið aflýst í dag. MYND/Valgarður

Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag. Verður athugað með flug í fyrramálið. Á þetta við um bæði Flugfélag Íslands og Landsflug.

Athuga á með flug til Akureyrar kl. 7:45 í fyrramálið, Ísafjarðar kl. 8:00, Egilsstaða kl. 8:15 og Vestmannaeyja klukkan níu um morguninn.

Talið er að allt að 1200 farþegar þurfi að bíða enn um sinn útaf veðrinu. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með tilkynningum á visir.is og flugfelag.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×