Innlent

Flutti ræðu á ráðstefnu um heimsleika Special Olympics

Opnun sérstakrar ljósmyndasýningar vegna heimsleikanna í Shanghai. Með forseta á myndinni eru m.a. sendiherra Kína hjá Sameinuðu þjóðunum, fulltrúar borgarstjórnar Shanghai og framkvæmdastjóri Special Olympics.
Opnun sérstakrar ljósmyndasýningar vegna heimsleikanna í Shanghai. Með forseta á myndinni eru m.a. sendiherra Kína hjá Sameinuðu þjóðunum, fulltrúar borgarstjórnar Shanghai og framkvæmdastjóri Special Olympics. MYND/Skrifstofa forseta Íslands.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í gær ræðu á ráðstefnu um heimsleika Special Olympics en þeir verða haldnir í Shanghai í október á næsta ári. Ráðstefnan var haldin í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York og voru meðal þátttakenda ýmsir æðstu embættismenn Sameinuðu þjóðanna, fulltrúar kínverskra stjórnvalda, sendiherrar erlendra ríkja og forystusveit Special Olympics. Samtökin eru helguð íþróttastarfi fólks sem býr við andlega fötlun en þátttakendur í starfi þeirra eru frá um 180 löndum. Rúmlega tvær milljónir íþróttamanna taka nú þátt í starfi samtakanna.

Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslanda að á ráðstefnugestir vildu að heimsleikarnir í Shanghai yrðu áhrifaríkt afl til breytinga á heimsvísu og gætu haft víðtæk áhrif á viðhorf þjóða til einstaklinga sem búa við andlega fötlun. Mikilvægt væri að tryggja að þeir einstaklingar og fjölskyldur þeirra hefðu aðgang að íþróttum og annarri þjónustu til jafns við aðra.

Þar segir einnig að greinilegt sé að kínversk stjórnvöld leggi mikinn metnað í undirbúning heimsleikanna. Nú sé um hálf milljón íþróttamanna virk í starfi Special Olympics í Kína en stjórnvöld stefni að því að tvöfalda þá tölu á næstu sex árum.

Í ræðu sinni vakti forseti Íslands athygli á því að með veglegum undirbúningi heimsleika í þágu andlega fatlaðs fólks væru kínversk stjórnvöld að senda sterk skilaboð um framtíðarstefnu, ekki aðeins í Kína heldur einnig á heimsvísu. Yfirlýsingar forseta Kína, Hu Jintao, gæfu m.a. til kynna að leikarnir yrðu grundvöllur félagslegra umbóta og aukinna réttinda þessa fjölmenna hóps í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×