Innlent

Úrskurðaðir í farbann eftir banaslys

Af vettvangi.
Af vettvangi. MYND/Vísir

Mennirnir tveir sem komust af úr bílslysinu á Reykjanesbrautinni um helgina hafa verið úrskurðaðir í farbann. Þriðji maðurinn sem var bílnum lést í slysinu. Ekki var ljóst eftir slysið hver ók bifreiðinni og voru þeir sem lifðu slysið af handteknir og vistaðir í fangaklefa eftir skoðun á sjúkrahúsi. Höfðu mennirnir réttarstöðu sakborninga við yfirheyrslur í gær. Lögreglan rannsakar meðal annars hvort um ölvunar- eða hraðaakstur hafi verið að ræða, auk þess sem verið er að skoða vegmerkingar.

Mönnunum hefur verið sleppt úr haldi lögreglunnar en eru í farbanni til 30. nóvember næstkomandi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×