Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur á Hellisheiði

MYND/Valli

Flytja þurfti tvo á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur á Hellisheiði. Ekki er talið að þeir séu alvarlega slasaðir. Slysið var rétt hjá Skíðaskálanum í Hveradölum. Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan hálf eitt og eru lögreglumenn enn að störfum á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×