Ófært er um Öxnadalsheiði en þar er stórhríð. Stórhríð er einnig á Þverárfjalli og á leiðinni í Fljótin. Verið er að opna milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Færð er víðast hvar þung. Það eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum.
Á Vesturlandi er sumstaðar ýmist hálka eða hálkublettir. Á Vestfjörðum er varað við óveðri í Gufudalssveit. Klettsháls er ófær og þar er beðið með mokstur vegna veðurs. Hins vegar er búið að moka Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp. Þó verður Eyrarfjall ekki mokað í dag.
Það er verið að moka á Möðrudalsöræfumog þar ætti að verða fært um hádegi. Það er ófært bæði á Breiðdalsheiði og Öxi. Mjög hvasst er nú við Lómagnúp og ekki ferðaveður.