Innlent

Sendiherrar fara oft út bakdyramegin

Mótmæli við Utanríkisráðuneytið í dag, vegna komu sendiherra Ísraels.
Mótmæli við Utanríkisráðuneytið í dag, vegna komu sendiherra Ísraels. MYND/Gunnar V. Andrésson

Algengt er að sendiherrar erlendra ríkja fari bakdyramegin út úr utanríkisráðuneytinu, að sögn siðameistara þar.

Athygli vakti að sendiherra Ísraels fór bakdyramegin út úr ráðuneytinu, í dag, og hitti ekki mótmælendur sem voru framan við húsið.

Elín Flygenring, siðameistari utanríkisráðuneytisins sagði að á þessu væri allur gangur. Bílastæði væru báðum megin við húsið og oft væri auðveldara að fá stæði bakvið það. Sendiherrarnir veldu sjálfir þá leið sem þeir notuðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×